Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 527, 143. löggjafarþing 137. mál: tollalög (úthlutun tollkvóta).
Lög nr. 5 23. janúar 2014.
Þingskjal 527, 143. löggjafarþing 137. mál: tollalög (úthlutun tollkvóta).
Lög nr. 5 23. janúar 2014.
Lög um breytingu á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum (úthlutun tollkvóta).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 12. gr. laganna:- Á eftir orðinu „innflutningsverðs“ í 2. málsl. kemur: að teknu tilliti til heildsöluálagningar.
- Á eftir 2. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skal tollur ekki vera hærri en 45% af ákveðnum magntolli samkvæmt tollskrá.
- Við 3. málsl. bætist: og að viðbættri heildsöluálagningu.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 20. janúar 2014.